32
Leiðbeiningar um uppsetningu og tengingu
1 Öryggisleiðbeiningar vegna uppsetningar
• Uppþvottavélina má aðeins flytja í lóðréttri stöðu, annars getur
saltvatn runnið út.
• Áður en vélin er tekin í notkun skal athuga hvort hún hafi skaddast
við flutninginn. Alls ekki má tengja vél sem hefur orðið fyrir
skemmdum. Ef skemmdir hafa orðið, ber að hafa samband við
seljandann.
• Aldrei má taka í notkun uppþvottavél sem er með skemmd í
rafmagnssnúru eða að- eða frárennslisslöngu. Einnig ef stjórnborð
eða sökkull er laskað þannig að opinn aðgangur er að innviðum
vélarinnar.
• Rafmagnstengilinn skal aðeins setja í samband við viðurkennda
rafmagnsdós með jarðtengingu.
• Ef vélin er fasttengd: Aðeins viðurkenndur fagmaður getur sett upp
fasttengingu við rafmagn.
• Áður en uppþvottavélin er tekin í notkun ber að fullvissa sig um að
rafspenna og rafstraumur, sem skráð eru á tegundarplötu
uppþvottavélarinnar, passi við rafspennu og rafstraum á þeim stað
þar sem á að setja tækið upp. Á tegundarplötunni er einnig að finna
upplýsingar um nauðsynlegt rafmagnsöryggi.
• Notið ekki fjölliða klær, millistykki eða framlengingarsnúrur. Eldur
gæti kviknað vegna ofhitunar!
• Aðeins viðgerðarmaður frá notendaþjónustu eða viðurkenndur
fagmaður getur skipt um rafmagnssnúru uppþvottavélarinnar.
• Einungis starfsmaður viðgerðarþjónustu má skipta um
aðrennslisslöngu með öryggisventli.
Comments to this Manuals