Aeg-Electrolux L64810 User Manual Page 31

  • Download
  • Add to my manuals
  • Print
  • Page
    / 36
  • Table of contents
  • BOOKMARKS
  • Rated. / 5. Based on customer reviews
Page view 30
31
Ábyrgðarskilmálar
ÍSLAND
Samkvæmt skilmálum Félags Raftækjasala
Seljandi veitir kaupanda, TVEGGJA ÁRA ÁBYRGÐ*, frá tilgreindum
afgreiðslutíma og er hún fólgin í viðgerð eða endurnýjun á hverjum
þeim hluta þess sem áfátt kann að vera, enda bendi líkur til þess að um
framleiðslu-eða efnisgalla sé að ræða. Ábyrgðin nær til efnis og
vinnulauna vegna hugsanlegra viðgerða, auk ferðakostnaðar (laun og
akstur) viðgerðarmanns allt að 15 km hvora leið, eða flutnings tækis
sömu vegalengd sé tækð fyrirferðarmeira eða þyngra en að kaupandi
geti auðveldlega komið því sjálfur á verkstæði seljanda eða þess, sem
hann vísar til.
Kaupandi ber sjálfur kostnað af tilkynningu um bilun svo sem
símakostnað og annan slíkan. Sé bilað tæki utan byggðarlags seljanda,
skal það borið undir hann, hvort senda skuli það til viðgerðar eða
kveðja til nærstaddan viðgerðarmann.
Skuli tækið sent, er minnt á nauðsyn þess að nota góðar og vel merktar
umbúðir, fara að fyrirmælum leiðarvísis, þegar hann kveður á um
sérstakan flutningsbúnað og möguleikana á að tryggja tækið gegn
flutningsskemmdum. Ennfremur skal fylgja lýsing á bilun. Skuli kvaddur
til viðgerðarmaður, afgreiðir seljandi varahluti til viðgerðarinnar á sinn
kostnað gegn því að honum séu endursendir hinir gölluðu hlutir ef
hann óskar. Vinnulaun og ferðakostnað viðgerðarmanns að
ofangreindu marki (15 km) greiðir seljandi eftir sundurliðuðum
reikningi viðgerðarmanns enda beri reikningurinn með sér eftirtalin
atriði:
1. Heiti tækis, gerð, númer og afgreiðslutíma, samkvæmt þessu skírteini.
2. Viðgerðardag og lýsingu á framkvæmdri viðgerð.
3. Fullt nafn og heimilisfang viðgerðarmanns eða fyrirtækis þess sem
viðgerðina annaðist.
Ábyrgðin nær ekki til bilana, sem framleiðanda eða seljanda verður ekki
um kennt, svo sem bilana, sem stafa af flutningi, rangri meðferð eða
misnotkun, slælegu viðhaldi, slysni eða óhöppum, náttúruhamförum,
truflunum á rafkerfi hússins eða veitunnar o.s.frv.
Ábyrgðin nær heldur ekki til óbeins tjóns vegna hugsanlegra galla á
tækinu, en kaupanda er bent á möguleikana á að tryggja sig gegn slíku
hjá tryggingafélögum.
Skilyrði fyrir ábyrgðinni eru almenns eðlis, svo sem að galli sé tilkynntur
strax og hans kann að verða vart og að ekki hafi verið átt við tækið af
aðilum óviðkomandi seljanda, nema í samráði við hann.
Bræðurnir Ormsson ehf.
Page view 30
1 2 ... 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36

Comments to this Manuals

No comments